Heimilisfang

Heimilisfang

Fréttir

Krónan í Lindum opnar í endurbættu húsnæði Yrkis

10. júní 2026

Krónan í Lindum opnaði að nýju í dag fimmtudaginn 11. júní kl. 08:00 eftir umfangsmiklar endurbætur á húsnæðinu sem er í eigu Yrkis. Með framkvæmdunum hefur rýmið verið uppfært með áherslu á nútímalegt skipulag, bætta aðstöðu og aukna sjálfbærni.

Verslunarrýmið, sem er alls um 3.500 fermetrar, hefur verið aðlagað að rekstri Krónunnar. Endurbæturnar fela meðal annars í sér nýtt innra skipulag og umhverfisvænni og orkusparandi kæli- og frystikerfi. Jafnframt hefur verið lögð áhersla á að skapa hlýlegt og aðlaðandi verslunarrými með betra flæði og aukinni upplifun viðskiptavina.

Krónan býður við opnun sérstök tilboð dagana 11.–14. júní og verður verslunin opin daglega frá kl. 08:00 til 21:00.

Við viljum þakka okkar frábæru verktökum, birgjum og þjónustuaðilum fyrir þeirra framlag í verkefninu.